Um fyrirtækið
800 Lagnir var stofnað í janúar árið 2020. Eigendur fyrirtækisins eru Guðjón Þórsson, pípulagningameistari og Eyjólfur Viðar Grétarsson, pípulagningameistari. Fyrirtækið hefur vaxið hratt frá stofnun þess og eru starfsmenn í dag 13 talsins.
Skrifstofur og verkstæði fyrirtækisins eru staðsett að Víkurheiði 10 á Selfossi, og vísar nafn fyrirtækisins til póstnúmers Selfoss – 800.
Hjá 800 Lögnum leggjum við áherslu á fagmennsku, vönduð vinnubrögð og góða þjónustu. Við höfum unnið fjölbreytt verkefni fyrir einstaklinga, fyrirtæki og verktaka og búum yfir mikilli reynslu á öllum sviðum pípulagna.
Markmið okkar er að veita áreiðanlega þjónustu, góð ráð og lausnir sem standast væntingar viðskiptavina – frá upphafi verks til enda.

Eyjólfur
Eigandi &
Pípulagningameistari
eyvi@800lagnir.is
888-8001
Guðjón
Eigandi &
Pípulagningameistari
gudjon@800lagnir.is
888-8002
Hjördís
Bókhald
821-3402

